Sumar með sól og regn og fólk og hesta

Lítið hef ég bloggað síðan í vor.   Ekki vegna þess að mér hafi fundist allt vera slétt og fellt; - öðru nær.   Hef samt lítið opnað tölvuna á kvöldin.   Stundum vegna þess að ég hef verið að þvælast á hestbak eða vesenast í kring um útiverk - og stundum vegna þess að við höfum fengið gott fólk í hús.

Við frú Helga settum talsvert mikið púður í að standsetja baðherbergi í Ystafelli - - auk þess sem almenn verk við hirðingu þar á bæ taka tíma um kvöld og helgar.    Svo eru það býflugurnar sem þarf að "smala og gefa" - - - - eftir tilteknu mynstri.   Vonandi næ ég undan þeim hunanginu áður en það verður allt ónýtt. . .

Svo tókum við smáhringferð með góðu fólki og 40 hestum um Þingeyjarsýsluna:  um Fnjóskadal, Bárðardal og Mývatnssveit og síðan í Laxárdal, Reykjadal, Aðaldal, Kinn og ´Ljósavatnsskarð og enduðum á Hálsi í Fnjóskadal.      Býsna strembið - - og raskaðist vegna slæmrar veðurspár og kulda á hálendinu 23.-25. júlí sl. - tókst samt bara vel.   Kom með einn bólginn hest úr ferðinni sem þurfti að sinna í framhaldinu . . . en er á góðum batavegi.

Höfum farið í nokkrar gönguferðir - IMG_1567

m.a. Í Hrafntinnuhrygg og Leirhnjúk og upp á Kinnarfjöllin og í Austurdal í Skagafirði . . . . . á Fiskidaginn á Dalvík IMG_1576

Enn hef ég ekki tekið nema lítinn hluta af sumarfríi 2009 . . . og frú Helga mætir í nýtt skólaár í Brekkuskóla á morgun.

Margt er ógert af því sem við höfum látið okkur detta í hug - og þó erum við ekki farin að hella okkur í að vinna sjálf við að byggja á Krókeyrarnöfinni , , , , , , það stendur hins vegar til um leið og gluggar og einangrun kemur á - - í næsta mánuði . . .

Verkefnin eru endalaus í vinnunni - - - og þegar henni sleppir þá er alltaf nóg að gera í öðru . . . .

Liklega blogga ég framvegis ekki nema út úr leiðindum og til að drepa tímann . . . .

. . . sjáum til . . . .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband