Vaxandi misrétti í Canada skv. fréttum CBC; - þrátt fyrir hagstæð skilyrði í efnahagslífinu

CBC í Canada birtir úttekt á því hvernig ójöfnuður vex þrátt fyrir hagstæða stöðu flestra efnahagslegra mælikvarða þar í landi.   Tölurnar eru að vísu ársgamlar  - - en ekkert sem þeir benda á rýrir niðurstöðurnar.

Sýnist þetta einkenni á hagkerfum vesturlanda - yfirleitt.     Nefndi þetta líka í hugvekju minni í H'usavíkurkirkju í dag eins og lesa má á www.bensi.is

 


Það getur ekki verið refsivert í sjálfu sér að vera Árni Johnsen . . .

Sýnist að það sé ekki neitt vit í því að embættismaður bregðist við ummælum um "hitamál" í Eyjum með því að hóta að kæra Árna Johnsen.   Það má að mínu mati ekki vera refsivert að vera Árni Johnsen . . . . . og er það auðvitað ekki.

Árni Johnsen

 Óvarleg ummæli Árna og fleiri Alþingismanna - um mörg mál og marga opinbera starfsmenn - - ættu ekki að verða viðfangsefni fyrir dómstóla - - eða vera sótt og varin undir ákvæðum hegningarlaga og refsiréttar.   Mér sýnist á hinn bóginn meira en tímabært að vitræn og skýrt mörkuð lög séu sett sem fela í sér siðareglur fyrir Alþingismenn og ráðherra; - og fela í sér viðmiðun og leiðbeiningar - um leið og í þeim felist viðurlög - þar sem þingmenn og ráðherra væru dæmdir til að straffast - kannski dæmdir frá málfrelsi sínu í ræðustóli Alþingis um tíma - - og í ítrustu tilefnum dæmdir til að segja sig frá embættum sínum.   Þar væri sett fram viðmið um það sem teljist við hæfi og annað sem ekki getur talist hóflegt - - og þá um leið veitt umboð fyrir forsætisnefndda (eða siðanefnd) til að beita skilgreindum viðurlögum.

Þannig væri þingmönnum settur skýrari agi heldur en refsilöggjöfin getur gert - - og um leið mætti hressa upp á virðingu Alþingis og sjálfstæði.      Slíkt mundi auðvitað gera kröfur til þess að forsetar ALþingis væru engir veifiskatar eða dulur og strengjabrúður í höndum ráðherra og þingmeirihlutans  - á hverjum tíma.    

Ég er þannig að láta að því liggja að mér þætti ástæða til að huga vel að mönnun í forsetastólum Alþingis - - og endurnýja þar ekki síður en þingmannaliðið almennt og einstaka ráðherrastóla . . . .

Hér væri beinlínis upplagt verkefni fyrir stjórnlagaþing að fást við - - þar sem ólíklegt má telja að samtrygging þingmannanefndar dragi fram nýja og skarpari vinkla til að aga pólitísku orðræðuna - og stemma stigu við ruddaskap og handbendis-aulagangi í samskiptum Alþingis og ríkisstjórnar - - og að ég tali nú ekki um þegar dómstólar og skipan dómstólana blandast inn í hin tvo valdstig ríkisvaldsins í okkar lýðræði.

Stjórnlagaþing sem kosið væri óháð flokkum og framboðum til Alþingis  - - er langlíklegast leiðin sem við eigum til að ná utan um mikilvægar breytingar á stjórnarskrá og setningu ramma um þjóðaratkvæði og fleiri lýðræðisumbætur.    Þingmennirnir og forystumenn flokka á þingi eru geinilega alltof fasti í því a draga eigin tauma - - og hugsa um að hygla sjálfum sér og sínum.

Sé yfirleitt ástæða til að aga Árna Johnsen eða typta - þá sýnist mér það ætti að gerast innan þings - - og með ákvæðum sem beinast að möguleikum hans til að láta til sín taka á Alþingi Íslendinga . . .

 


mbl.is Ætlar að kæra Árna Johnsen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir er kominn í rosaleg vandræði - - með afneitun og þessa EKKI-aðild Íslands að ESB

Maðurinn þarf að fá hjálp.   Hann er fastur í afneitun.   Að segja að rætt sé um Evrópusambandið - - en ekki um aðild Íslands að Evrópusambandinu . . . . . . er ekki hægt.

Geir getur ekki boðið gestum sínum sem eru í alvöru í pólitík upp á svona vitleysu . . . .   við í Samfylkingunni getum ekki borið ábyrgð á svona vitleysu . . .

Gordon Brown er svosem farinn að missa hylli í sínu landi . . . .  en það er einum of langt gengið að íslenski forsætisráðherran sé að "ritskoða" fréttatilkynningar frá Downingstræti 10 - - bara til að þóknast þráhyggju nokkurra nátttrölla í einum Hóli . . . .

Geir þarf hjálp frá eigin vandræðum; - - - áður en þau verða að óyfirstíganlegum vanda okkar allra . . . .  Þarna er þessi fasprúði stjórnmálamaður - sem syngur í partíum með - formaðurinn með "mannlega yfirbragðið"  - að bregðast hrapallega . . . .

. . . .  enn má koma honum til bjargar með því að slaka til hans pólitískri líflínu . . . . . en meginspurningin er hver ætlar að halda í endann . . ? og hvar á að tryggja endann?


mbl.is Ráðherrar á rökstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankinn úti í mýri . . . . .

Skoðaði Framsóknarsvörin.   Sýnist þau vera fyrirsjáanleg - - og ekki koma á óvart.  

Hvers vegna voru lækkaðir skattar á betur stæða á síðustu 4 árum?  Hvers vegna var bindiskylda bankanna ekki aukin - heldur aflétt nánast?    Hvers vegna hækka vextir í þeim hluta hagkerfisins sem fungerar á ISK með verðtryggingu - - og leiða til þess að spákaupmenn fara að sækja sér vaxtamun inn til Íslands?   

  Heldur Seðlabankinn virkilega að hagstjórnarlíkan bankans hafi verið rétt stillt frá  upphafi  - það séu bara einhverjir aðrir sem hafa gert mistök?

Var Seðlabankinn ekki á Íslandi þetta síðasta tímabil frá 2003? 

Ætlar Seðlabankinn að þvinga fram varanlega frystingu fasteignaviðskipta og þannig rústa byggingariðnaðinn og verktakastarfsemi í landinu?   Hefur Seðlabanki Íslands engin tök á að kynna sér forsendur fyrir aðgerðum Englandsbanka - - sem spýtir inn 50 milljörðum punda til að koma viðskiptum og byggingum aftur af stað í Bretlandi?    Kannski var ekki rætt um þetta þegar Geirr Haarde sótti Gordon Brown heim um daginn (eða það má amk. ekki segja frá því hafi svo verið).


mbl.is Engin rök fyrir örvandi aðgerðum ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sturla Böðvarsson er eitthvað að rugla; - ekki mundi Jón forseti líklegastur til að mótmæla frjálsu verslunarsambandi við Evrópu

Nú seilist Sturla Böðvarsson lengra en góðu hófi gegnir og kennir Jóni Sigurðssyni forseta um hérvillingshátt Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum.

Sjálfstæðismenn voru á einum tíma fyrstir til að setja það á sína stefnuskrá að sækja bæri um aðild að ESB.  Seinna leiddi ríkisstjórn Davíðs Oddssonar Ísland inn í EES samninginn . . . . . og í kjölfarið höfum við tekið upp 75-90% af tilskipunum ESB - án þess að eiga nokkurs staðar aðkomu að mótun þeirra og þróun - né hafa möguleika á aðlögunarfyrirvörum.

Hættið þessarri vitleysu Sjálfstæðisþingmenn - og hlustið á ykkar eigin þungavigtarfólk í atvinnulífinu!   Það er ekki tilviljun að meginsamtök í atvinnu- og viðskiptalífinu setja nú stefnu á Evrópunálgun - með EVRU sem gjaldmiðil.    Það er heldur ekki nema beinlínis bjánalegt að láta eins og við eigum að græða á aðildinni að EES  - en við eigum ekki að taka við skuldbindindi þátttöku í vinnslu og mótun regluverks og laga sambandsins.   Þessi mýta um að útlendingar séu á leiðinni að eyða auðlindum fiskimiðanna - ef við göngum í ESB er líka illa rökstudd - - það er enginn útlendingur með veiðireynslu skv. skilgreiningu ESB  - og það er heldur enginn sem er að fjárfesta í sjávarútveginum beint né óbeint. 

Því miður er það okkar eigin aumingjaskapur sem er á góðri leið með að eyða fiskistofnum - við þurfum enga hjálp í það . . . .    Svo er ranglæti kvótakerfisins með gjafakvóta-úthlutuninni og framsali og eignfærslu - - að verða okkur sjálfum alltof erfitt.

Nær væri að markaðsvæða kvóta hvers árs og bjóða hann upp (taka til baka kannski með fyrningartíma upp á 5-10 ár) - en skilyrða fiskveiðarnar hins vegar við að fiski sé landað í tilteknum landshlutum og fari þar á markað - - og að skilyrða það að áhafnir séu lögksráðar og róðrar séu farnir frá tilteknum höfnum og landshlutum . . .  um það má nefnilega semja við ESB eins og gert var í Bretlandi og á Möltur að einhverju leyti líka . . .

Nei Sturla þetta er eitthvert bull og ekki boðlegt í nafni SJálfstæðisflokksins - - ef hann vill skilgreina sig sem málsvara atvinnulífsins og heilbrigðra viðskipta (pro-business).


mbl.is Aðild að ESB ekki fýsilegur kostur segir forseti Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Stephensen; - til hamingju með tækifæri þitt sem ritstjóri . . . og gangi þér vel

Hef trú á því að Ólafur Stephensen og nýlegir eigendur Morgunblaðsins muni breyta blaðinu.   Mogginn hefur farið býsna hratt niður á við - - - eftir að njóta uggvænlegrar einokunarstöðu í fákeppni sinni frá þeim tíma sem hin flokksblöðin lögðu upp laupana.

Mín skýring er sú að Matthíasarvinkillinn hafi verið sjálfstæðri afstöðu Moggans afar mikils virði  - - og birting dagbóka Matta Jó - sýnir það etv. best að hann hafði nokkurn hita í haldi við þröngsýn valdasjónarmið Davíðs og fleiri manna í Sjálfstæðisflokknum.

Styrmir án Matthíasar - reyndist ekki fær um að halda þeim sjó sem þurfti til að Mogginn tæki forystu - í gegn um breytingatímabil fríblaða og nýrrar tegungar athafnamanna í íslensku viðskiptalífi.

Ólafur Stephensen vinnur í umboði nýrrar kynslóðar - - sennilega talsvert öðruvísi hugsandi fólks en "gamli-kjarninn" var.   Ég vona innilega að Morgunblaðið verði aftur frjálslynt blað - - og boðberi mýkri sjónarmiða - - - og leggi hlutdrægni "Staksteins í Hádegismóum" - til hliðar.    Ólafur Stephensen er vel fær um að móta sjálfstæði blaðsins í orðræðu nútímans . . . og hann skynjar örugglega að tímar hinnar öfgafullu frjálhyggju eru að baki - - og hann skynjar örugglega að hófsöm og borgaralega öfl í stjórnmálum þurfa að innleiða praktíska pólitík í Sjálfstæðiflokkinn í stað þeirrar hlutdrægu og hefnigjörnu valdapólitíkur sem Davíðstíminn skildi eftir.

Nýtt fólk mun stíga fram ef . . og fleiri en Þór Sigfússon, Ásdís Halla og Hanna Birna . .

Gangi þér vel Ólafur.  Góður Moggi gerir okkur öllum gagn - - en slæmur Moggi getur orðið viðvarandi samfélags-djöfull . . . amk. meðan hann hefur 40% lestur og yfirburðarstöðu sem áskriftarblað.


Þingvellir eiga að njóta forgangs - - og alheimsvirðingar áfram á heimsminjaskrá UNESCO

Líst ekkert á að láta tiltekna einsýni með vegalagningu - - - - spilla fyrir alheimsvirðingu Þingvalla.

Er ekki í vafa um að okkur er mikil nauðsyn að varðveita trúverðugleika okkar - - og Þingvellir eru einstakir mtt. náttúfarsins og sérstaklega sögu lýðræðis og þeirrar stjórnskipunar sem var líklega meira og minna einstök á tíma Þjóðveldisins.

Það eru viðskiptatækifæri í því að Þingvellir séu áfram á heimsminjaskránni - - - til lengri tíma ekkert síður en með því að stytta leiðir á landi.    Gamli vegurinn er til staðar og ekki sérlega flókið að breikka hann og bæta - - og það er alveg fráleitt að 90 km hámarkshraði alla leið eigi að vera eitthvert sáluhjálparatriði . . .


mbl.is Þingvellir af heimsminjaskrá?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð og Seðlabankann skortir traust . . . . . því fer sem fer.....

Það er gamall og nýr ósiður að kenna öðrum um. Davíð reynir að klína vandamálinu á aðra - - en skilur ekki að hann er sjálfur vandamálið - - - -

Svo er einu sinni enn - - og ekkert breytist . . .

Vætturinn við Arnarhól - - - - er búinn að vera . . . . . .


mbl.is Fjármálastofnanir skortir traust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostnaður og gæði geta haldist í hendur - - en í því er engin trygging

OECD segir að skólakerfið okkar hafi orðið kostnaðarverðbólgu að bráð - á fáeinum árum.      Lengi vel hafa íslensk stjórnvöld staðið sig illa við upplýsingagjöf og látið vanta gögn og greiningar til samanburðar.   Verst er samt að við erum ekki viss um að samanburðurinn sé sanngjarn eða réttur. 

Til dæmis eru tveir þættir sem hér eru inni í menntunarkostnaði sem ekki teljast til menntunarútgjalda  í nágrannalöndum;    húsnæðiskostnaður vegna "fasteignafélaga"  í eigu sveitarfélaga - - reiknar fjármagnskostnað og líkir eftir "markaðsvæddum rekstri" - - sem tæpast eða ekki þekkist í nágrannalöndum.   Þessi kostnaður hefur hækkað reiknuð útgjöld sveitarfélaga  sem nemur væntanlega 0,6-0,8% af GNP/þjfrml.

Hitt er að stofn og rekstrarkostnaður af Lánasjóði Íslenskra námsmanna - - LÍN - - er talinn til menntunarútgjalda  og bætir við líklega 0,3-0,5% GNP-hlutfall menntunarkostnaðarins - -

 Fyrsta vers ætti að vera að leiðrétta þetta - - og svo ræða um kostnaðinn til samanburðarins


mbl.is Dýrt skólakerfi en launin lág
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á aðalfundi KEA - -

Fyrst fjölmiðlarnir eru farnir að kroppa í minn málflutning þá sýnist mér rétt að félagsmenn í KEA hafi aðgang að öllum sögðum orðum.

Ræðan mín er orðrétt; -  á vefnum www.bensi.is - - - - beina slóðin er; HÉR

Já; ég gagnrýni það að gerðar séu stefnmarkandi áherslubreytingar - - og skipulagsbreytingar sem ekki eru útfærðar með opinskárri stefnumótun - með víðtækri vinnu.

Starfshættir eru ekki heldur til fyrirmyndar . . . . . . . og félagið hefur dregið verulega úr þátttöku í samfélagsverkefnum og misst frumkvæði í mikilvægum málum.   Styrkir hafa líka verið skornir niður - og arðgreiðslur til félagsmanna ekki neinar þótt afkoman sé reikningslega mjög góð. . . . . en félagsmenn geta kynnt sér hvaða sjónarmið hafa togast á.......


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband