10.11.2007 | 13:26
Guðni gleymir sér í fordómum og kvenfyrirlitningu...
Hissa á því að blaðamaður Morgunblaðsins skuli endurvarpa - "án tilvitnunarmerkja" - því orðbragði sem Guðni notar t.d um Ingibjörgu Sólrúnu. Þykir það ekki sæmandi Guðna - og alls ekki ef hann er nú að reyna að staðsetja Framsóknarflokkinn "almúgamegin" á stjórnmálasviðinu. Guðni lét sér lynda í 12 ára sambúð við Sjálfstæðisflokkinn að færa flokkinn algerlega frá félagshyggju og hefðbundnum rótum flokksins meðal almúgans - amk. að því er snerti frjálslynda og framsækna félagshyggju. Eftir sat forpokuð forsjárhyggja og þröngsýnt íhald - - fyrir það mesta.. sem bakkaði þá Davíð og Halldór upp alla leið til Írak.....og í tjáningarbann fjölmiðlalaga. . . Ja. svei... og þú líka Guðni!
Þess vegna Guðni ert þú formaður í smáflokki . . . . .
Guðni: Forsætisráðherra er daufur og sinnulaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.