Egill Ólafsson - misskilur "kotbóndann" og mærir "verksmiðjubúskapinn" ........

Í Morgunblaði dagsins er viðhorfs-pistill (bls34) eftir Egil Ólafsson.   Leggur út af "Síðubók Böðvars Guðmundssonar" sem var að koma út.     Kotbúskapur þess tíma sem Böðvar vísar til - - var "kotbúskapur" og mikið erfiði - oft og einatt basl fyrir þann smáa bóndann og fjölskyldu hans og ekki síður fyrir vinnuhjúin.....  Það eimdi verulega eftir af þeim búskap þegar Böðvar var að vaxa upp í S'iðunni.

Egill hins vegar lendir virkilega út um víðan völl og langt frá því sem Böðvar er að tala um sem "kotbúskap og basl" - sem er engin eftirsjá að.

Sjálfbær fjölskyldu-búskapur með 300 kindur og 12 kýr um og upp úr 1970 - var að sönnu enginn stórbúskapur - - og gaf oft og iðulega ekki mikið meira en til hnífs og skeiðar . . . .  en gaf þó til þarfa fjölskyldunnar og oft vel það.......   Þetta var samt um leið "lífsform" - - og þannig rómantískt fyrir marga sem hafa ánægju af umgengni við sinn búsmala og það mannlíf sem sveitin elur.

Hagfræðingar og markaðshyggjumenn (m.a. Gylfi Þ Gíslason) - ásamt áætlunarbúskap Stalíns hafa lagt upp margar kenningar og rekið þónokkrar tilraunir með verksmiðjubúskap lengst af 20. öldina.   Kjúklingarækt og svínarækt um heim allan eru rekin í því formi og upp á síðkastið hefur mjólkurframleiðslan víða hvar þokast í þá áttina.

Það að hafna innflutningi á sænskum kúm eða norskum  - á ekkert skylt við "rómantík" kotbóndans - - og það á heldur ekkert skylt við slíka rómantík að benda á að sjálfbær rekstur smærri eininga - getur staðið undir hærri gæðastandard á matvörunni heldur en verksmiðjubúin get.

Svo má ekki gleyma þeirri mengun og sóun sem verksmiðjubúskapurinn stendur undir - í formi efna og lyjanotkunar og - og vinnuskilyrði verkafólks á kjúklingabúum í ýmsum löndum kynnu jafnvel að gera kjör margra "smábænda" á Íslandi góð.

Ekki hefur enn tekist að sýna fram á að "stærra sé endilega betra" - í rekstri kúabúa á Íslandi og ekki heldur að það sé sjálfgefið að ofurvélvæðing og fjármagnskostnaður stórbúsins færi bóndanum og fjölskyldu hans meiri tekjur og aukin lífsgæði; - í "Síðunni sinni"

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband