Bull er þetta: það er ekki ásættanlegt að stjórnendur RÚV hagi sér eins og þeir eigi fyrirtækið

Hér er einhver alvarlegur misskilningur á ferðinni:  ´RÚV sem ber fulla ábyrgð gangvart almenningi má ekki taka þátt í starfi þrýstihóps og hagsmunafélags einkafyrirtækjanna . . . slíkt getur ekki samrýmst almannaþjónustuhlutverki félagsins.

Þó það séu uppi "Berlúskónískir tilburðir" - hjá Páli Magnússyni í umboði Sjálfstæðisflokksins - þá er auðvelt að ganga fram af þanþoli almennings.  RÚV er ekki hlutafélag sem lýtur lögmálum markaðarins og er opið samkvæmt kröfum kauphallskráningar  - - en er á sama tíma heldur ekki háð upplýsingaskyldu hins opinbera.

Páll Magnússon og stjórn RÚV fara sínu fram - - en nú ganga þau í berhögg við allar eðlilegar kröfur um trúnað gagnvart öllum almenningi.    Þau eiga ekki félagið - - við eigum það öll - og þess vegna er óþolandi að RÚV gerist aðili að þröngsýnu hagsmunafélagi - - sem beinlínis vinnur að því að þjóna "sérhagsmunum" - í stað fyrri meginskyldu félagsins að gæta trúnaðar og hagsmuna alls almennings.

Páll Magnússon má ekki fá að haga sér eins og hver annar sjálfseignamógúll og prívatfjárfestir.   Nóg er nú um þá sjálfskömmtun launa sem virtist verða fyrsta forgangsmál útvarpsstjórans og gæðinga hans - langt út úr launastrúktúr annarra starfsmanna RÚV.


mbl.is RÚV gengur í Samtök verslunar og þjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erum við virkilega meinlausari í neyslunni - - eða eru afleiðingar unglingadrykkju síðustu 20 ára bara ekki komnar fram?

Staldra við þessa frétt - ekki síst þegar aðrar fregnir berast af áfengismálunum frá SÁÁ.    Það eru óhuggulega margir af öllum kynslóðum sem missa alveg stjórn á neyslunni - - og við mörg eigum það sameiginlegt að drekka inn á milli of mikið - jafnvel drekka okkur út úr og missa minni.   Höldum því til undantekninga og trúum því að "það sé allt í lagi með okkur" . . .

Er eki að grínast með það að þó heildarneysla Íslendinga sé í neðri kantinum miðað við aðrar Evrópuþjóðir.   Held að það sé ekki neitt vit í því að fara að setja áfengi í matvörubúðirnar - þar sem aðgengi að bjór og léttu víni er býsna opið í gegn um hina fjölmörgu veitingastaði og sjoppur meðfram þjóðvegum........


mbl.is Drykkjusiðir Íslendinga orðnir meinlausari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr vinkill á kvótakerfið - - það er jú rosalega óréttlátt

Gaman að sjá að það er kominn upp nýr vinkill á óréttlæti kvótakerfisins.  Vonandi hjálpar það okkur að taka upp siðmenntaða orðræðu um það hvernig við breytum kerfinu - - til að draga úr óréttlæti þess og megingöllum.

Kannski er nú versti gallinn sá að við höfum ekki nægar grunnrannsóknir og faglega þekkingu - - til að geta byggt á siðaða ráðgjöf við stjórnmálin.  Hafró er plöguð af innviklun og hagsmunatengingum - - og forstjórinn er löngu kominn á tíma.

Mannréttindanefndin hefur fellt sinn úrskurð og það er alveg óhugsandi annað en við tökum málið upp til yfirvegaðrar umræðu.  Í Guðs-bænum látum nú ekki Einar Guðfinnsson og Friðrik Arngrímsson og gömlu grátkerlingarnar í hópi hagsmunaaðila LÍÚ ráð umræðunni - - hún verður að fá vitsmunalegt rými.    LandbúnaðarGeiri (Sigurgeir ráðuneytisstjóri) - - þarf að halda aftur af sér í yfirlýsingunum þannig að hann verði ekki búinn að skamma Samfylkinguna áður en "ráðrúm gefst til að hugsa" um afleiðingarnar. 


mbl.is Íslensk stjórnvöld breyti fiskveiðistjórnunarkerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni, come´on . . . er ekki í lagi.....

Hafi dómaranefndin misskilið hlutverk sitt ber ráðherra eða Alþingi að segja henni upp.   það getur ekki verið í verkehring setts dómsmálaráðherra að breyta þeirri viðteknu skipan að dómnefnd starfi -  - í umboði laga um dómstóla.     Árni þú ert bara í rugli . . . með þetta svona.

Það eina sem hægt er að gera til að lágmarka skaðann er að þú "íhugir að segja af þér" - - eða þá að Þorsteiinn Davíðsson biðji um að það verði spólað til baka - og segji sig frá embættinu sem hann var skipaður til . . af þér "svona prívat" . . .


mbl.is Segir dómnefnd hafa misskilið hlutverk sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veggjakrotið í Reykjavík - - ótrúleg skemmd og skítmennska

Við frú Helga fórum um borgina með okkar fólki í dag.   Þetta var dýrðardagur - bjartur og fagur og lognkyrr.    Allt annað en vindruddinn og rigningarþræsingurinn sem mest hefur borið á hér um SV-land frá því í sumarlok.     Okkur leið vel og allt virkaði afslappað í kring um okkur - - fengum okkur gott að borða og kíktum í Kringluna og Smáralindina.

Veggjakrotið á Laugaveginum og niðri í bæ - - er sannast sagna skelfilegt.   Framhliðar húsa er stórskemmdar og umhverfið þegar á það er litið orðið "ruddalegt" - - eins og á því sé klæmst.    Hér eru einhverjir slordónar að misnota frelsið - - og spilla fyrir okkur öllum með þvílíkum yfirgangi að það réttlætir að mínu mati alvöru aðgerðir.   

Það er ekki viðunandi að láta "æla yfir sig" - - eða "míga á sig á almannafæri" - - við samþykkjum ekki að menn gangi örna sinna hvar sem vera skal.   Hér þarf að grípa í taumana - - - og sá sem selur sprey-efnin og ber við viðskiptafrelsinu hlýtur að þurfa að skoða sinn gang mjög alvarlega.

Svo má líka velta fyrir sér hvort "guttarnir" sem spreyja vilja láta mömmu sína sjá til sín . . . og hvort ekki er réttlætanlegt að taka upp þvingaða samfélagsþjónustu við að hreinsa og mála yfir - - um leið og fébætur hljóta að þurfa að koma til.

Mér sýnist þetta mál á pari við það "að æla á Alþingishúsið" og "pissa á Hæstarétt" - um miðjar nætur - - en á því hefur verið tekið með árangri.

Skora á reffilegan lögreglustjóra í Reykjavík að takast á við málið - (eigendur verslana og húsa við Laugaveginn veigra sér við að kæra - af ótta við aðgerðir - - að því er virðist!)

 

 


Kauphallarvísitalan byrjar ekki vel.........

Fyrstu þrír viðskiptadagar ársins spá ekki vel fyrir skuldsettum fjárfestum.  Líkur til að veðköllum fjölgi og spurning hvert það framkallar skrúfu sem erfitt verður að stöðva.

Ástæða er til þess að skoða hvernig vaxtastefna Seðlabankans og innhlaup með vaxtahækkun á haustdögum spilar undir kostnaði fjármálastofnana og hvernig frysting á útlánum bankanna veldur skyndilegu sjokki á þá sem verst voru fjármagnaðir.    Innhlaup Seðlabankans í haust var afar illa rökstutt - - og ber enn keim af pólitísku hermdarverki - þegar fyrirséð var að kólnun var í nánd í hagkerfinu.

Enn og aftur met ég stöðuna þannig að ríkisstjórnin þurfi að draga sig í hlé - - til að hugsa ráð sitt og stíga síðan skarpt inn á sviðið og breyta lögum um Seðlabankann og útreikningi vísitölunnar - - um leið og gengið verður af krafti til móts við "þjóðarsátt" - - í kjarasamningum á næstu vikum.

 


Það er bjart framundan á árinu 2008

Sé ekki nein merki um annað en að það sé bjart framundan í þjóðlífinu;  

  • Efnahagslífið hefur tekið dýfu á liðnu ári
  • - - hlutabréfin eru neðar en fyrir ári, 
  • vextirnir eru í hærri hæðum en nokkurs staðar og
  • verðbólgan er á fart.   

Getur þetta nokkuð annað en snúist til betri vegar?

Hvað þarf annars til að slíkt gerist?    Er Seðlabankinn kannski sá aðili sem stýrir niðursveiflunni?   Sé svo þá þarf líklega að vinda bráðan bug að því að breyta lögum um bankann og skella sér í að ná "þjóðarsátt" - - - um efnahagsframfarir. 


Áfram Ólafur Ragnar . . . gerðu gagn

Prýðlegt ávarp hjá forsetanum og ágæt útlegging frá´Jónasi Hallgrímssyni . . .  Fagna því að hann gefi kost á sér áfram.    Ólafur hefur reynst dugandi og virkur forseti - - og hefur bæði unnið sjálfsmynd þjóðarinnar gagn brýnt okkur til að efla menntun og bæta uppeldi - - en hann hefur einnig lagt lið í að kanalísera viðskiptatækifæri til Íslenskra fyrirtækja og mógúla.     Þarna þarf að sýna hóf . . . .  og vinna eftir sýnilegri stefnumótun og siðareglum.

Vonast til að Sjálfstæðisflokkur Geirs Haarde stilli sig um offorsið gegn ÓRG - - - en vinni í þess stað að víðtæku samkomulagi með lýðræðis- og félagshyggjuöflunum um það hvernig minnihluti Alþingis og tiltekið hlutfall kjósenda getur framkallað þjóðaratkvæði . . . . um einstök málefni.   

Inn á árið 2008 kemur því mögulega í ljós hversu mikil tök Davíð Oddsson ennþá hefur á Sjálfstæðisflokknum - - fari lykilmenn og maskínan í Valhöll í stríð við ÓRG þá vitum við hvar Davíð er . . .  verði það hins vegar ekki þá eru Geir og Þorgerðar að taka stöðuna meira til sín.. ... mundi ég álíta. 


Kvótakerfið hefur brugðist; - og kvótaskerðingu þarf að svara með nýrri atvinnustefnu.........

Kvótakerfið hefur ekki skilað okkur vaxandi þorskstofni á 20 árum . . . . .  það hefur mistekist.   Stofnum hrakar - enda búið að beina veiðum á hrygningarstofnanan og "stóru þorskamæðurnar" eru ennþá drepnar af græðg ógæfumannsins (svo vísað sé til Canadískra þjóðsagna).

Kvótakerfið var ranglátt frá upphafi - með úthlutun gjafakvóta . .  til kvótagreifanna.      Kvótakerfinu þarf að stíga út úr. . .  með einhvers konar fyrningu á 4-7 árum.

Rannsóknarstarf fiskifræðinga þarf að eflast og skila okkur greiningu á því hversu margir og aðskildir stofnar eru við landið.   Þetta þarf að fara fram með því að Hafró verði aftengt hagsmunasamtökunum og pólitískum handstýringum - og háskólaumhverfið virkjað til að skila af sér grunnrannsóknum.

Um leið þarf að friða það sem eftir er af kórallasvæðum og hraunum á sjávarbotni - - þannig að uppeldissvæði verði virkari.....

Störfum í sjávarútvegi og landbúnaði mun bara halda áfram að fækka . . . . . og við því þarf ríkisvaldið að bregðast með því að skapa forsendur fyrir umsköpun atvinnulífsins

ÞAð nýja atvinnulíf sem tekur við vinnuafli framtíðarinnar verður ekki byggt á öðru en hækkuðu menntunarstigi - - og fjárfestingu í rannsóknum og umgjörð um þekkingardrifinn iðnað og hátækni.   Til þess þarf bæði orku og háhraðatengingar - - auk þess samgöngur....


Af veðurhamnum - og þök fjúka.......

Heyrði áðan í Eyþóri frænda mínum í Baldursheimi.   Hann sá á eftir þakinu af fjárhúsunum síðdegis í dag.  Rétt áður hafði hans ágætu eiginkonu verið feykt fyrir húshornið - - þeim til aðhláturs báðum þar sem hana sakaði ekki.

Man eftir því hvað hlákustormurinn í skammdeginu gat verið skelfilegur - - og reyndar á ég minningar um að fjúka í vatnið heima á Grænavatni - þegar svellað var og hlákublautt með suðaustanhvassviðrinu.   Engan sakaði þá  - - en við munum óttann sem tengdist veðurhamnum og upprifjunum af ótímabærum dauða eins af uppáhaldsfrændunum hjá mínu fólki á Grænavatni.

Þannig vandist ég á að þakka fyrir hvern stórviðrisdaginn sem leið án þess að menn hlytu skaða eða líkamstjón - - að ekki sé minnst á það versta sem komið gat fyrir í veðrum.

Eins gott að björgunarsveitirnar séu í viðbragðsstöðu - - því ekki munu gróðapungar og sérgæðingar mæta á sveitabæi til að festa þök og tryggja öryggi óvarkárra á jöklum.  Styrkjum sjálfboðastarfið - - og samhjálparhugsunina...........IMG_0384Það er einfaldlega ekki alltaf logn . . . .


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband