30.12.2007 | 14:45
Guðlaugur Þór með sýndarmennsku - - sem ekki er heiðarlegt þegar er réttbúið að samþykkja fjárlögin
Ég fagna mjög þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra að fella niður komugjöld barna hjá heilbrigðisstofnunum. Hef lengi reynt að halda fram því sjónarmiði að slík gjöld séu óeðlileg - - og ranglát og alveg sérlega á þeim tímum sem verið er að lækka skatta á ríku fólki.
Það er hins vegar hvorki heiðarleg né góð pólitík af heilbrigðisráðherra að breyta samsetningu komugjaldanna núna - þegar rétt er búið að samþykkja fjárlögin fyrir árið 2008. Það er líka óeðlilegt að gera þetta "góðverk" á kostnað annarra sjúkra - - á kostnað öryrkja og aldraðra.
Nei Guðlaugur Þór - í ofanálag ertu að reyna að skreyta þig með fjöðrum frá Samfylkingunni - sem flokkur þinn hafnaði í aðdraganda og við frágang fjárlagafrumverpsins. Þetta er léleg pólitík og verður þér og þínum flokki ekki til framdráttar.
Það er og verður ranglát skattheimta að taka komugjöld af veiku fólki - og lækka skatta á okkur sem erum í þokkalegum efnum og á sæmilegum launum - - frísk og fullvinnandi. Það er hluti af mannréttindum mínum í vestrænu velferðarsamfélagi að fá að borga skattana á meðan ég er fullvinnandi og fær um - - og vita að ég verði ekki rukkaður fyrir þá sjúkdóma og þá ellihrörnun sem ég kynni að verða fyrir síðar. Það er á sama hátt mikilvægur hluti af mínum réttindum að borga skatta - og þess vegna nokkuð hærri skatta - - núna og standa með því undir öflugri og markvissri fjárfestingu í menntun og rannsóknum og þróunarstarfi til að skapa forsendur fyrir efnahagslegum vexti og velsæld næstu áratuga. 'I þeirri fullvissu að þá verði öflugur hópur ábyrgra borgara á vettvangi efnahagslífsins - al´búinn að greiða sanngjarna skatta til að standa undir flottu þjónustukerfi fyrir okkur - - sem vanist höfum lúxus og lífsgæðum á velmegunardögum Íslenska hagkerfisins.
![]() |
Börn greiði ekki komugjöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2007 | 18:12
Völvan og heimsósóminn - - - allt að fara til helvítis
Völvuspáin fyrir næsta ár er ekki efnileg. Lítur út fyrir að spáin sé samin af úrillum Framsóknarmanni sem býr utan þess svæðis þar sem Framsókn er í meirihluta í sveitarstjórninni....
Greinilegt að völvan sér ekki margt af góðu viti framundan í stjórnmálum eða í viðskiptalífi. Kannski verður hún sannspá að þessu sinni - - - en ég verð að segja að mér fyndist betra ef spáin gengi ekki betur eftir en undanfarin ár.
Það er nú bara þannig..........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mér sýnist þær fregnir að Landsbankinn beri vín í ráðherrana - - þokkalegt vín - ættu fyrst og fremst að draga athyglina að því að skortur er á reglum sem tryggja gagnsæi í samskiptum aðila í stjórnmálum og í viðskiptum. Síðustu 15 árin hafa slíkar reglur rutt sér til rúms í viðskiptalífinu í nágrannalöndunum og hafa kauphallir gengið þar á undan. Það hefur verið hert á kröfunni um slíkar reglur eftir Pharmalat og Enron skandalana - sem urðu til vegna þess að skúrkar komust til áhrifa og fóru sínu fram - - með mútum og spilltum sérgæðisaðferðum.
Stjórnmálamenn á Íslandi hafa lág laun og eru illa varðir gagnvart gjöfum og greiðum frá fyrirtækjum og mógúlum sem margir hverjir reyna að hafa áhrif á ákvarðanir. Einkavæðing síðustu ára og í nágrannalöndum hefur allt of oft gefið grunsemdum um spillingu undir fótinn - - með réttu eða röngu. Í Kanada og Þýskalandi hafa stjórnmálamenn nýlega misst sín embætti vegna þess að þeir þágu greiða, boð eða gjafir frá stórfrirtækjum. Fjáröflunum í kosningasjóði flokka og einstaklinga er nú hvarvetna reynt að setja takmörk. Helmut Kohl gekk laskaður frá leik stjórnmálanna vegna spillingar - - við Tony Blair hangir óviðfelldinn hali spillingarmála . . . vegna fjárframlaga aðila sem síðan fengu greiða á móti.
Held að það sé best fyrir alla að setja skýrar siðareglur innan fyrirtækjanna og sérstklega í kauphöllinni - - reglum sem yrðu þá forsenda að fjárfestingum t.d. lífeyrissjóðanna.
Um leið vildi ég sjá tvennt gerast gagnvart stjórnmálamönnum; annars vegar að laun alþingismanna yrðu hækkuð verulega - gerð amk. sambærileg við laun framkvæmdastjóra í meðalstórum og stærri fyrirtækjum - sem þýðir þá líklega á bilinu 1-2 milljónir á mánuði. hins vegar vildi ég sjá að þeim yrði gert að afsala sér öllum öðrum launuðum verkefnum og beinum hagsmunum af eigin rekstri og eignarhaldi - og bannað að taka við gjöfum eða greiða umfram sýndargjafir eða smálega hluti og þá að slíkt sé allt skráð hjá eftirlitsnefndum Alþingis. Ráðherrum yrði síðan gert að fjarlægja sig ennþá skýrar öllum hagsmunatengslum og hættu á árekstrum - bæði fyrir og á meðan á ráðherradómi stendur.
Ef Landsbankinn kýs að senda fjölmennum hópum - - áhrifamanna og ráðamanna - gjafir um jól þá má líta á það sem aðferð við PR - - og gæti tæplega verið grundvöllur fyrirgreiðslu - - en ef gjöfin er stór og hópurinn þröngur og sérvalinn - - - þá getur hófsemdarhjal ráðherranna orðið meira en vandræðalegt.
![]() |
Ráðherrar fengu vín frá Landsbankanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2007 | 11:23
Hátíðlegt í aftansöng í Akureyrarkirkju - Gleðileg jól öll
Hátíðlegur aftansöngur - - á aðfangadagskvöld. Sr. Óskar H Óskarsson og organistinn Eyþór Ingi voru með "samtalspredikun" - - sem vakti athygli. Góður Sr. ´´Oskar . . . náði til fólks með einfaldri boðun og umhugsunarverðri nálgun. Kirkjan var troðfull eins og vera ber. Kórinn var svolítið grisjaður . . . . margir með kvef og flensu en samt sungið - með hjálp koníaks-toddýs.
Þetta er byrjun á jólum okkar Helgu. Afgangurinn af fjölskyldunni fæst ekki lengur til að koma með. Það bar til þannig að fyrir einhverjum árum - - voru foreldrar með verulega óþæg börn sín sem voru látin leika lausum hala í kirkjunni - undir aftansöngnum - og meðhjálparinn náði engum tökum á ástandinu. Bassarnir í kórnum reyndu að stara á foreldrana og fá þá til að bregðast við en án árangurs............... Síðan hafa dætur alveg afsagt að fara í kirkjuna á aðfangadagskvöld. Skil ekki fólkið sem enn kemur með illa undirbúin börn sín í hátíðarstundina - - - það hlýtur að vera erfitt fyrir börnin ekki síst. Enn var óþarft ónæði af óróa í börnum í gærkvöldi.......... þó presturinn eigi erfitt með að reka börnin frá sér á jólum - - - varla í anda Frelsarans.
Bloggar | Breytt 29.12.2007 kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2007 | 09:03
Jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju
Síðasta sunnudag bauð Kór Akureyrarkirkju upp á "jólasöngva" sína og flutti prógrammið tvisvar. Undirbúningurinn var nokkuð strangur og ýmislegt sem át tímann frá kórfélögum - m.a. frestun á flugi frá Kaupmannahöfn - þar sem nýráðinn annar organisti sinnir nokkurs konar "fjarþjónustu" frá Danmörku.
Að bjóða fólki án gjaldtöku á þennan jólasöng - og bjóða viðstöddum upp á að syngja með í þekktum lögum - er orðin býsna föst hefð í starfi Kórsins . . . . og nú með þátttöku sóknarinnar beint. Sjálfum finnst mér mikilvægt að lengja ekki athöfnina með biblíulestrum og bænahaldi - - og veit að sama gildir um marga af okkar fastagestum. Sr. Óskar og Sr. Sólveig Halla voru stuttorð - - en það þarf ekkert að fara út í bænastagl - og við megum ekki ætlast til að gestir þoli okkur illa lesna afdankaða pistla.
Mér finnst kórfélagar vinna gott verk með þessu og þannig leggja að mörkum til samfélagsins í aðdraganda jóla. Enda mætum við skilningi og jákvæðum viðtökum hjá næstum því öllum þar sem við leitum stuðnings. Fætur margra kórfélaganna munu örugglega hafa verið orðnir nokkuð þrútnir - við lok söngs um kvöldið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.12.2007 | 12:11
Veðrið og færðin frábær - hér á Norðurlandinu
Skammdegið styttist alltaf þegar vel viðrar. Nú er milt og svell og snjór á bak og burt. Frábært fyrir fólk á öllum aldri að geta ferið ferða sinna án vandræða.
Þetta styttir skammdegið og sérstaklega í aðdraganda jólanna þegar margir eru á ferðinni. Hitti fólk frá Djúpavogi í gær.
Kvarta ekki undan myrkrinu hér í bænum - allt er upplýst sem aldrei fyrr og auðveldara að fást viðs kreytingarnar í góðviðrinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2007 | 13:14
"Hatrammur byskup" - þarf að breyta um tón til að njóta áfram þeirrar virðingar sem þjóðkirkjan þarf á að halda . . . . . . . . . . . . .
Hef áhyggjur af því að byskupinn og prestarnir sem fara mikinn gegn "Siðmennt" - - séu að spilla andrúmslofti og því umhverfi sem þarf að - - - að ríkja um sjálfsagða fræðslu og siðgæðisuppeldi ALLRA BARNA á íslandi. Slík fræðsla þarf að fá aukið rými í skólum - - með það fyrir augum að "efla sáttfýsi og skilning" - milli manna og hópa í samfélagi sem er í vaxandi mæli fjölþjóðlegt.
Grein Herra Karls Sigurbjörnssonar í 24-stundum í gær - - er að mínu mati mistök - - og það eru mistök af hálfu byskupsins að láta eins og hann hafi umboð hins alvitra og óskeikula . . . og geti sett ofan í við Siðmennt á þeim grunnu að þau séu "hatrömm" - - -
Sóknarpresturinn minn ágætur Sr.Svavar A Jónsson - bloggar um þessi mál undanfarið. Hann er varkár í þessu en vill greinilega ekki sleppa "forgjöfinni" sem Þjóðkirkjan sannarlega hefur haldið. SKil hann hins vegar þannig að hann vilji sýna jákvæða breidd "hins stóra" - sem á að haga sér í samræmi við krafta sína og yfirburðastöðu
Skólafólkið lætur lítið til sín taka - - velti því fyrir mér?? af hverju
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2007 | 20:04
Kirkjan setur sig í hlutverk fórnarlambsins - - en er á sama tíma að pressa sig inn í almenna skólatímann
Algerlega óviðunandi nálgun hjá Hr. Karli Sigurbjörnssyni biskup að verið sé að ráðast á kirkjuna - með þeim breytingum sem eru í farvatninu - með því að "klisjan - kristilegt siðgæði" - sé tekið út úr viðmiðum almenningsskólans og sett í staðinn skýr krafa um að mannúð og mannvirðing og fyrirgefning og sáttfýsi sé sett í öndvegi.
Kirkjan hefur lengi verið afar afskiptalaus um skólastarfið almennt - - það er ágætt og engin eftirspurn eftir því að kirkjan komi inn til að sinna trúboði eða trúariðkun.
Þjóðkirkjan á að sinna sínum verkefnum á sínum forsendum þar sem foreldrar "færa börnin til frelsarans" - - hún á sín hús og hefur fjöldann allan af starfsmönnum á launum hjá íslenska ríkinu.
Við sem erum - - áhugasöm um einhverja þætti kirkjulegs starfs eða trúarbragðanna - - við eigum að bera þetta fram sjálf - - en ekki troða okkur inn þar sem börnin eru að sinna skólastarfi og almennum þroska sínum. Einkalíf og trúarlíf - - á ekki að truflast með átökum milli sjónarmiða af þessum toga. Hr. Karl byskup á að draga í land......... og vinna með ábyrgðarmönnum menntamála á jákvæðum nótum - - ekki með þessum ósanngjarna tóni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.12.2007 | 17:37
Fráleitt að auka veiðar hreindýra núna - meðan enginn veit um áhrif Kárahnjúkavirkjunar - segir vinur minn
Vinur minn hringdi rétt í þessu og var mikið niðri fyrir. Hann er sjálfur menntaður náttúrufræðingur og vann einu sinni í þessum umhverfis og náttúrverndargeira. Ég álít hann hafa þekkingu fagmannsins.
"Hvað fær ábyrga vísindamenn til að leggja til breytingar á veiðikvóta hreindýrann þegar enginn veit hvernig afkoma stofnsins og burður hreindýrann á næsta vori kemur út - þegar þessar gríðarlegu umhverfisbreytingar Hálslóns eru að verka í fyrsta skipti?" -spurði vinur minn - ég gat ekki svarað því auðvitað...... en þegar ég hugsa um það þá virkar þetta alveg ofsalega illa grundað - vitandi ekkert um það hvernig stofninn bregst við - og hvort mikilvægustu burðarsvæðin verða ónýt fyrir dýrin - - og vitandi ekkert hvernig stofninn mætir nýjum og áður óþekktum aðstæðum.
Ég spurði hvort ég mætti vitna í vin minn; - og hann baðst undan því að verða nafngreindur - þar sem hann vinnur hjá fyrirtæki sem á mikið undir verkefnum fyrir nokkra stóra aðila sem ég þori ekki að nafngreina.
Svona er nú Ísland í dag - - þöggunin er ekki úr sögunni.
![]() |
Hreindýraveiðikvóti stækkaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.12.2007 | 22:39
Hjaltalín - frábærir krakkar.... og músík líka fyrir þá sem eru komnir til ára sinna.
Er aldeilis yfir mig ánægður með að heyra í nýjum böndum líkt og Hjaltalín - með sína fyrstu plötu. Hef sperrt eyrun áður þegar þau komu fyrst fram - - og verið með tengil á bloggið mitt.
FINNST AÐ VIÐ EIGUM AÐ FYLGJAST MEÐ ÞÓ VIÐ SÉUM BYRJUÐ AÐ GLEYMA: - - EN HÉR ER SEM SAGT LINKUR Á GÓÐA TÓNLIST. Til hamingju krakkar og gangi ykkur vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)