Ekki er langt liðið síðan ísbjörn var drepinn - vegna heimskulegs kæruleysis lögreglu og Almannavarna. Engar varúðarráðstafanir - gerðar með lokun vega og því að kalla fólk frá svæðum - engin viðbragðsáætlun og leiðsögn til hjá björgunarsveitum, lögreglu og Landhelgisgæslunni - - engar aðgerðir tiltækar til að fanga dýr af þessarri stærð og gerð - - engar áætlæanir um geymslu og flutning slíkra dýar - í dýragarða eða á mjög Norðlægar slóðir . . . . .
Hvað hefur nú gerst eftir atburðina fyrir stuttu? Hefur verið gerð áætlun um viðbrögð og eru Almannavarnir og lögreglan í stellingum? Er Víkingasveitin tiltæk - að vakta dýrið - - verður sett út fóður fyrir dýrið áður en það fer til fjalls - - eða leggur til atlögu við hús og fólk og búsmalann?
Nú er sem sé orðið morgunljóst að björninn sem felldur var fyrir 2 vikum - var ekki einsdæmi - - - því annar er mættur. Þeir gætu orðið fleiri á árinu 2008 - - - og margir á næstu árum þó ekki sjáist neinn alvöru-hafís.
Hvar eru nú ráðherrar öryggismála - - með sína skotmenn og "Varnarmálastofnun"
Ísbjörn í æðarvarpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Auðvitað á ekki að drepa hann. Vonum að ráðamenn reki af okkur slyðruorðið og bjargi honum. Það fer að verða óþægilegt að skreppa út í heim. Maður þorir varla að viðurkenna að maður sé Íslendingur, þjóð sem plaffar niður dýr í alvarlegri útrýmingarhættu. Hugsandi fólk um allan heim lítur slíkt alvarlegum augum.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 16.6.2008 kl. 14:47
Einmitt, Varnarmálastofnun. Til hvers er hún nú aftur?
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 17.6.2008 kl. 09:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.