18.6.2008 | 22:31
Viðskiptaráð á villigötum; - öfgakenningar frjálshyggjunnar valda því að skýrslurnar eru frekar trúboð en greinandi vísindi
Hörmulegt að lesa áróðurinn úr Viðskiptaráði; Frjálshyggjubullið hefur alveg heltekið þetta ágæta fólk. Þessi nýja skýrsla - gegn opinberum umsvifum - er framhald af því trúboði sem gengið hefur á síðustu árin; - - að knýja fram aukna markaðsvæðingu og búa til umgjörð um hagnaðardrifna starfsemi einkaaðila í heilbrigðis- og menntakerfinu.
Sjá t.d. skýrsluna um Ísland 2015 - - sem er meira áróður en innihaldsrík greining á hagrænum forsendum.
Hissa á að Viðskiptaráði að koma núna inn með svona mótsagnarkennda hluti - - þegar allflestir ábyrgir aðilar í efnahags- og atvinnulífi kalla eftir auknum umsvifum ríkis og sveitarfélaga . . . . . . . . .
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.